Tjékkaðu á þessu
19.10.2007 09:36:53 / disa

Styttist í shopping geðveikina;)

Langt síðan síðasta færsla kom frá minni;) en spurnign um að hætta þessu bara.

En frá síðustu færslu þá er Selma mín orðin 2 ára og fekk hún voða fína veislu og fullt af pökkum. Ég missti alveg af henni því hun hljóp með pakkana bara út um allt og reif þá upp. En herbergið hennar er semsagt orðið fullt af dóti:)

Helgarnar hafa verið fínar hjá mér og er ég mikið búin að vera á flakkinu Norður í afslöppun. En nú tekur við smá vinnutörn hjá mér og svo er það bara Baltimore baby. Jebb aðeins 12 dagar í ferðina þar sem við mæðgur munum versla yfir ykkur. Ef ég þekki mömmu mína rétt þá verður hún með svona 60 kg í yfirvigt......en ég er byrjuð að gera lista um hvað skal kaupa. úfffff spenningurinn í hámarki. En fyrst þarf ég að klára fullt af verkefnum í skólanum og ætla ég að byrja á því áður en ég tek fram ferðaTÖSKURNAR.

Svo fer að líða á seinnihlutann í skólanum sem betur fer því ég er að rotna hérna, en ég verð komin í jólafrí 10 des, sem er nú ekki slæmt þar sem ég þarf ekki að mæta fyrr en í janúar aftur;)

En skelli jafnvel inn loku á milli verkefna;)

Skelli inn mynd af prinsessunni minni á afmælisdaginn, er hún ekki lík mér??

Kveð að sinni, Dísa Skvísa

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 00:09:40 / disa

Fallegasta prinsessan mín á afmæli í dag:)

Þessi elska er orðin 2 ára

Trúi því bara ekki hvað tíminn er fljótur að líða....man eins og það afi gerst í gær að ég var upp á fæðingardeild kvalin en svo fekk ég þennan gullmola í verðlaun....gæti eki beðið um meira enda er hún mér allt.

Elsku litla dúllan mín

Til hamingju með afmælið og við skulum sko njóta dagsnins með fjölskyldu og vinum:)

 

Elska þessa stelpu meira en allt:) enda er hún fallegust

Alltaf glöð og kát og gerir alla daga sekmmtilega eins og enni er einni lagið hvort sem það eru prakkastrik eða sem litla ljúflambið hennar mömmu sinnar:)

Dísa, stoltasta mamman


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 11:37:31 / disa

Hvað er ég að gera í lífinu??

jammm nú er hausinn á mér á fullu........!!!!

Sit hérna í skólanum og skil engan vegin hvað ég er að gera hérna.....er ég að pína mig að sitja hérna til að láta niðurlægja mig svo þegar ég er búin að sitja hérna í 3 ár?? Ég er búin að vera fylgjast svolítið með kennurnum og þetta er bara "lúðar" upp til hópa. En ég get allavegana sagt ykkur það að ég ætla mér aldrei að vera kennari og ég skil nú ekki stráka sem vilja læra þetta......því mér finnst karlmannskennarar ógeðlegestu karlmenn á landinu.... alltof sveittir , með flösu, alltaf sömu fötin og tala nú ekki um gleraugun sem þeir fegnu í fermingargjöf...en þið þurfið ekki að örvænta að ég verði svona því þetta er ekkert sem heillar mig... ég ætla að klára þessi 3 ár hérna og útskrifast sem KENNARI;) en ætla ekki að segja nokkrum manni að ég se menntuð kennari...kanksi á ég eftir að skrifa það á ferliskránna mína því enginn fær að sjá hana:)

En jújú ég er líka að fara í fuglaskoðun á eftir...er alveg að missa mig úr spenningi .......eða þannig....!!!

En helgin var róleg hjá mér, skellti mér Norður með Selmu minni og áttum við góðar stundir saman við mæðgur......held að ég eigi eftir að fara oftar:)

En Selma verður líka 2 ára eftir viku og 1 dag góðir hálsar....jebbb fermingarundirbúnigurinn fer að fara á fullt fljótlega því jú prinsessan mín fær sko flottustu veislu aldarinnar.....hvernig verður þá brúðkaupið...er það ekki móðir brúðinnar sem borgar þann pakka eða hvernig var það???

 

en það er nokkuð ljóst að ef ég verð kennari þá get ég ekki einu sini haldið veislu fyrir hana:(

En ég er farin að velta fyrir mér öðru námi að þessu loknu........

Kveð ykkur að sinni elskurnar!!!

Dísa sem er að læra að verða kennari:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 13:12:45 / disa

Kellan að verða smá eldri en hún er í dag;)

úfffff það nálgast að það bætist eitt ár við aldurinn minn......23 ára jibbbbbííí.! Á miðvikudaginn eru 23 ár síðan að ég fæddist, fljótt að líða ekki satt;)? mamma segir það að minsta kosti. Mamma er ennþá í kökufílingnum og bakaði köku fyrir mig sem eg mun hafa herna og svo ætla ég að sjálfsögðu að gera eitthvað sjálf, allavegna reyna það;)

En alltaf sama góða veðrið hérna á þessu skeri. En ég er bara heima í dag með Selmu því hún er lasin þessi elska. Þannig þetta verður algjör kúrudagur hjá okkur mæðgum.

Annars var helgin ofsa róelg bara, sofnuð fyrir miðnætti bæði kvöldin. Náði að gera alveg helling um helgina sem ég hefði ekki gert hefði ég farið á skrallið;) Mæli með þessu!

En annars lítið að frétta þessa dagana.......jubbb mamma mín gamla góða er búin að panta ferð fyrir mig, hana og Ástu systir til Baltimore og ætlum við að versla af okkur rassgatið...úfffff hvað við þurfum að versla mikið ef við ætlum að versla það af okkur;) híhí Förum semsagt út 31 okt og er spennan komin í hámark. Gaman að geta eytt smá tíma með mömmu og tala nu ekki um litlusystur.

En mér er orðið kalt og ætla aftur undir sæng að kúra mér:) Ég er orðin kertasjúk, finnst voða notalegt að hafa kveikt á kerti hérna og tala nú ekki um ilmkerti.........;) ÞAnni gundir sæng með kerti og góða spólu.:)

mæli með að allir fari bara undir sæng að kúra þegar svona veður er, annars langar mig ofsalega í rúnstykki og eitthvað úr bakaríinu. Spurningum að bjalla á kellinguna og biðja hana að droppa við þar og færa prinsessunum sínum;)

Later, Dísa Skvísa


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 15:33:00 / disa

Skólalífið byrjað

Jæja nú er skólinn byrjaður og ég verð nú að viðurkenna að ég er mjög fegin að vera komin úr ningsgallanum og steikingarbrælunni svona á daginn;) Svo tala ég nú ekki um hvað það er notalegt að vera buin snemma og geta farið heima að leggja sig eða gert eitthvað fyrir sjálfa mig....

En prófið sem ég fór í gekk bara framar björtustu vonum og naði ég því með glans , ég sem hélt að ég myndi ekki fá einkunn því ég gat ekkert, en það virkar kanski að bulla og bulla, allavegna gerði það hjá mér í þetta skiptið!

Helgin var ofsa fín og feit. Föstudagur fórum við stelpurnar út að borða á Vegamót og sátum þar og spjölluðum og borðuðum, ummmmm ofsa gott. þarna inn kom mjög veik kona af búlmiíu( Tinna leiðréttu mig ef þetta er vittlaust nafn) og gvvuuuðð minn góður hvað ég vorkenndi henni.....jújú ég viðurkenni sjálf að ég er alveg til í að fá þennan sjúkdóm í einhvern tíma til að verða eins og ég vil en ég held að ég sé hætt við.......og ég veit að það vilja margir fá svona í nokkra daga eða vikur en þetta er mjög óhugnalegt og bara hreint út sagt viðbjóðslegt:(

eftir allt átið og spjallaið var farið heim  og horf á vidjó og keypt nammi fyrir alltof mikið, en það þarf að kaupa mikið ef feitt fólk er annarsvegar;)

Á laugadaginn var bara vakanað snemma og farið í tiltekt hérna á heimilinu og svo hringdi mamma gamla og vildi fá selmu í sveitna og Selma var  greyið yfir sig spennt að fá að fara....þannig eftir sat ég ein í kotinu mínu og hafði ekkert að gera....finnst ég hálf einmanna eitthvað þegar ég hef ekki gullið mitt. Um kveldið var svo afmæli hjá Ingu í vinnunni og það var sko stuð......ég ákvað að fá mér lítið af kræsingum og fá mér bara ávexti úr bollunni því jú það var svo mikið af þeim, en þið vitið sennilega hvernig það endar....en þetta endaði ekki svo illa að ég var í góðum gír til 8 um morguninn.

Daginn eftir eins og hjá mörgun þá sagðist ég vera hætt nuna að djamma en vikan er varla hálfnuð og það er verið að draga mann í meira djamm......hvar enda ég????? ég væri til í að vera kominupp í himininn en ég á gull hér sem þarfnast mín þannig ég verð hér áfram!

Svo eitt að lokum, heyrt hef ég að ég sé komin með slæmt orð á mig eftir eyjar....en fæ ekki nöfn uppgefin á hverjir segja svona lagað um mig........þannig gerið fyrir mig og notið tíminn ykkar í annað en að slúðra um fólk.....fatta ekki svona lagað....ég hlýt að vera svona merkileg að fólk nenni að eyða tíma í að slúðra um gripinn.

En skólinn kominn a fullt og klukkan að slá í 4 og Selma mín er buin hjá dagmömmunni, best að fara að knúsa hana þá og gefa henni minn tíma:)

Læt þetta duga í bili smili:)

Dísa ( þessi með ljótu orðin á sér)

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 18:09:06 / disa

Nú fer maður að virkja sig smá!

Jebb skólinn er að fara að byrja og þá verður maður sennielga eitthvað virkari á þessari síðu, þar að segja ef eitthvað gerist í þessu blessaða lífi mínu:)

En byrjum á leiðinlegu hlutunum. Þá fór drottningin í próf í morgunn og ég hefði nú átt að vera með bleyju í prófinu því ég skeit alveg upp á bak í því. Þannig nú þarf maður að sitja með 1.árs nemum í þessu aftur:( En ég fæ þessu ekkert breytt núna........vona bara að kennarnir sofi vel eftir að hafa samið próf sem er ekki úr námsefninu.....:(

Helgin var asskoti góð og fórum við Tinna mín í 30. ára afmæli hjá Adda gamla.....ég kanski drakk einum bjór of mikið og hóf mitt uppistand....en samt ótrúlega gaman......!!!

En svo er það næsta helgi (ég veit að það er þriðjudagur) þá verður jafnvel farið út að borða með nokkrum vel völdum píum....skýrist þegar nær dregur. Annars er ég hætt að tala um rólegheit og þess háttar. Klikkar einhvernvegin alltaf hjá mér....:(

En skólinn að fara að byrja og aðeins 2 vinnudagar eftir og ég get ekki beðið eftir að komast úr þessum núðlum og steikingarbrælu allan daginn:(

En það var nú meira að sinni.....nú fer maður að sitja meira við tölvuna og þá veit ég sjálf að ég verð dulegari með þetta;)

Hafið það gott og elskið hvort annað, þar að segja ef þið hafið eitthvað til að elska....;)

Dísarinnnnnn drulla;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 11:08:18 / disa

Eyjar 2007

Jebbb því miður er helgin búin en samt er alltaf gott að komast heim í góða sturtu og náttföt og tala nú ekki um rúmið sitt;)

Helgin var rosa skemmtileg og ekki sekmmdi fyrir allt þetta skemmtielga fólk sem maður hitti. En samt þarf maður að fara að hugsa hvort maður hafi úthald í þetta.....ég var ekkert að passa mig að sofa of lítið því ég náði nú góðum svefni þarna....en samt ofsa gaman:) Veðrið var að sjálfsögðu frábært og ekki hægt að kvarta yfir  neinu sem ætti að skipta máli;)

En gullið mitt beið eftir mér þegar ég kom heim og það vill svo skemmtielga til að eg var ansi hress eftir þessa helgi....ótrúlegt en satt.

En við mæðgur erum í fríi í dag og verður hann notaður til að þvo þvott og horfa á spólur og hafa það bara kósý saman;)

en svo fer að líða að Selman verði 2 ára...úfffff ég þarf að fara að drífa mig að koma með annað.....þarf að fara að finna mér kall og gifta mig og punga út;) nnnnneeeeiiiiiii ætla að bíða með það í langan tíma í viðbót:)

en hafið það gott elskurnar........:)

Setning helgainar var klárlega " æjjj koddu í sleik" við klikkuðum alveg á peysunum með þessari setningu;)

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 22:37:09 / disa

Ég snýst í hring, hring, hring, eins og geisladiskur;)

Jamm lífið heldur áfram þó svo að það sé eitthvað stopp hjá mér þessa dagana en ég er öll að hressast og koma til. En ég hef velt fyrir mér hver er eiginlega tilgangurinn með þessu lífi?? er það að vinna, borða og sofa?? æjj ég skil þetta ekki.....er allavegna búin að finna það út að tilgangurinn með mínu lífi er að vera mamma fyrir gullmolann minn. En ég er hætt að væla yfir þessu hér..rífa mig upp úr þessu volæði og halda þessu lífi áfram eins og mér er ætlað til;)

En síðasta helgi var fín þar sem mannstappa kom samna heima hjá mér og skáluðum í nokkur glös. En nú held ég að þetta sé að verða komið gott í drykkju hjá mér og er að spá í að breyta um líferni og fara lifa heilbrigðu lífi og hreyfa stóra rassinn minn meira.

JEbbb ef einvher nennir að vera duglegur að koma með mér út að hlaupa og jafnvel labba þá er ég voða til í það.:)

En ég er að fara að keppa í strandhandboltamóti næstu helgi með Fjölnisstelpunum mínum og það verður eflaust ofsa gaman að hlaupa í sandinum, vonum bara að veðrið verður gott. Bið ekki um meira.

En ég held að ég hafi nú ekki mikið meira að segja heldur er ég bara komin í háttin og bíð spennt eftir að komast í steikingarpræluna á nings á morgunn, eða þannig...þoli ekki að standa þarna allan daginn. HÆTTIÐ AÐ BORÐA NINGS;) ennn það er helgarfrí framundan með Selmu minni;) Hún er gullið mitt:)

 

ummmm jarðaberin í DK eru gull líka;)

 

Á morgunn vakan ég með bros á vör;)

 

Kveð ykkur í bili, Dísa þessi ljóshærða með bláu augun;)

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 16:08:04 / disa

Köben færslan

Jebbb köben ferðinni að ljúka en við stöllur komum heim annað kvöld:) er ekki komin mótökunefn á völlinn??Allavegna þarfég einhvern sterkan til að bera töskuna því ég lofta henni ekki. Er aðeins búin að missa mig hérna í búðunum en allt er lokað í dag þannig ég get kælt kortið mitt:)

Annars held ég ða ég sé mest fyrir DK því finnst ofsa gott að vera hérna og sef vel hérna og langar ekkert heim, nema kanksi jú til að knúsa Selmu mína....sakna hennar ansi mikið:( Ég er nú búin að heyra í henni og hún segir  bara að ég eigi að koma heim......en hún fær fullt af fötum og dóti þegar ég kem þessi elska....

En annars er lítið að frétta er ekki buin að gerna neitt hérna nema að versla eins og vittleysingur og djamma smá og úffff hvða ég er sleip í dönskunni.....er að ná henni á nokkrum dögum:)

En svo er spurning því það er sunnudagur og allir að plana næstu helgi....eru einvherjir til í party í nýja húsinu???????

En svo var litlan hennar Eddu og Valda að fá nafn.....og fekk hún nafnið Petra Björk...hlakka til að sjá hana og geta kallað hana nafni. Til hamingju með nafnið sæta prinsessa:)

En læt þetta duga í bili núna,

kem heim á morgunn eftir að hafa verið stoppuð í tollunum og svona.......ég og tinna erum svo miklar pæjur að það er eina ástæðan sem þeir stoppa okkur......:)

kveð að sinni,

Dísa sem skrifar frá köben;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 11:09:28 / disa

Köben köben:)

Jebbbb nú er komið að því að ég og Tinna erum á leið til DK...ekki leiðinlegt::)

Helgin var frekar leiðinleg þar sem ég stóð opnun lokun vaktir á nings og var frekar búin a því eftir helgina...á fstudagskeldið vorum ég og Tinna ofsa heilbrigðar og fórum út að hlaupa í klukkutíma og svo í góðan bíltúr eftir það......laugadagskveldið fór aðeins í að taka til....jebbb þannig skemmtileg helgi hjá mér:(

en nú fer líka ða styttast í þjóðátiðina:) jíbbbbbíííí....spurnig hvort maður höndli þessa drykkju eða að maður verði kanksi bara eitthvað edrú.....líklegt??

En ég held að þreytan sé að drepa mig......en það var dinner með gellunum úr KHÍ í gær og vorum við allar afvelta eftir góðan mat....alltaf gaman að elda góðan mat og borða hann.....annars er lítið að frétta....spurning um að fara í bankann og ná í einhvejra seðla og pakka smá niður...

en ég kem kanksi með færslu frá köben, aldrei að vita...;)

Dísa Danaskvísa;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 22:34:17 / disa

Flutt og allt að gerast:)

Jebb drottningin er komin í gamla góða árbæinn aftur og nú get ég sko fylgst með skalla lífinu hérna fyrir utan og séð hvernig maður var eða við vinkonurnar:)

En gott að vera komin í árbæinn og ég er bara byrjuð að labba út um allt eða svona næstum því og ég er farin út að hlaupa þar sem e´g er víst orðin svo mikil BUDDA:) hvað segið þið að budda sé??

En ég er líka orðin nokkuð góð eftir aðgerðina og er bara útskrifuð hjá lækninum sem er bara gott.......:)

Svo er veðrið búið að leika við okkur stórborgabúa undanfarið og ég er na´tla búin að vera í veikindafríi í vinunni en ég get logið að nokkrum að e´g hafi bara verið á spáni því ég er orðin svo tönuð:) er farin að sofna bara útí sólinni:) nú er bara að viðhalda þessu tani svo ég líti ekki út eins og rottuskítur.

En ´vildi bara lata vita að ég er á lífi og er loksins búin að fá netið hingað sem e´g er búin að bíða eftir í næstum 3 vikur:( þeir fengu að heyra það í símanumí dag og þeir hlupu til mín og redduðu þessu. Gott að vera ákveðinn:)

En svo er það bara Köben 11 júlí með Tinnu sín:) hlakka ofsa til en ég held að e´g sé farin að sofa barasta:)

ÞAngað til næst

Dísarinn sem er tönuð:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 23:07:17 / disa

Ég er bara ekki manneskja í tjillið;)

Jamm nú er mín bara kjúklingur heima hjá mömmu en ég er ekki alveg að nenna því að liggja hérna í einvherju herbergi. Skrítið að búa inná einhverjum þegar maður hefur búið einn í svona langan tíma.

Flutninganir eru búnir og allt draslið mitt er komið inn í stofuna í Hraunbænum en ég get ekki sofið þar alveg strax þar sem karlmenn eru þekktir fyrir að vinna svo hægt og ekkert gengur þarna. Nú fer ég að standa yfir smiðnum og hef kanksi svipu með mér:) En þetta hlýtur að fara að gerast , allavegana er hjónaherbergið að klárast og þá get ég farið þangað inn með rúmið. Ég kýs nú samt kanski að kalla þetta ekki hjónaherbergi því ég á engann mann:( kanski keur einn sraumaprisn á hvítum hesti til mín og bankar......sé það aldrei gerast;)

En jamm mín fór í aðgerð í morgunn og viti menn haldiði að ég hafi ekki vaknað á skurðarborðinu þegar það er ennþá verið að gera við mig og ég vissi ekki hvert ég ætlaði þetta var svo sárt. Það var greinilega ekki verið að eyða dropa og miklu svæfingarefni í mig og e´g hringdi í mömmu og sagðist vilja fara heim og  hun kom og náði í mig....góðar essar mömmur við mann alltaf:)

En ég hef ekki mikið að segja kanski meira nema ég þigg allar heimsóknir á meðan ég er að jafna mig en þeir sem þekkja mig þá er ég ekki alveg til í að liggja og fór í heimsókn í kveld með Írisi minni og út í búð og alles. Það þyrfti að binda mig niður ef ég ætti bara að liggja....en ég harka þetta af mér eins og alvöru nagli og reyni að jafna mig á met tíma. læknirnn segir að þetta jafni sig á 10 dögum en ég ætla að sanna annað og svo sagði hann að þetta væri alveg gróið eftir 3 vikur en ég skal sanna það líka að þetta gerist hraðar og sjáum hvort ég hafi re´tt fyrir mér núna:)

En kem senniega með eina stutta þegar ég er að klépra í rúminu.

Hey já ég fekk blóm frá einvherjum í dag og á kortinu stóð góðan bata og ekkert nafn:( hmmmmmm......ætli þetta sé námsmaðurinn?? sem miðilinn talaði um:) hahahahah

 

Dísarinn sem á leyndan aðdáenda:) "heldur að það sé Stella"


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 10:17:21 / disa

Ég er snilli pilli;)

Jebbb ég er undrabarn, ég náði öllum prófunum þó svo að ég hafi nú bara fjarfest í einni bók;) en ég fekk þó eitthvað lánað:) en loksins er þetta alt komið inn og ég get hætt að hafa áhyggjur á að þurfa að fara í fleiri sumar´próf;)

En annars get eg núna ekki beðið eftir að flytja, nú er allt komið svona nokkurnvegin ofan í kassa og ég hef ekkert að gera hérna og Selma gerir lítið annað en að rífa það upp sem ég er búin að pakka.....ætla að reyna að flytja í þessari viku.

En hvað er málið með veðrið hérna, ég held að þetta sé versta landið í heiminum hvað veður varðar. Maður nennir engan vegin að búa hérna lengur. En svo er Selma að fara í sumarfrí í næstu viku og þá er eins gott að að verði komið gott veður svo við getum gert eitthvað annað en að hanga heima í þunglyndi;)

 En ég fór til miðils á mánudaginn og mæli með þessu sko. Þetta var magnað! Hann lýsti mer ofsa vel ég bara hló að honum hvernig hann getur þetta:) Hann sagði að ég þyrfti að bæta sjálfstraustið g fara að gera meiri kröur til fólks sem er alveg rétt. Svo sagði hann að ég á það mikið til að gefast upp og setja hindranir fyrir allt sem ég geri sem er alveg rétt því ég sé bara aldrei neitt bjart yfir því sem ég geri. Trúi bara ekki að ég geti gert hlutina. Svo sagði hann við mig, "Hættu þessum áhyggjum alltaf" ég bara ok nú náði hann mér alveg! ég á það nebbla til að ég get ekki sofnað á kvöldin því ég er svo hrdd um að deyja fljótlega og ég er alltaf að tjekka á nóttunni hvort Selma andi ekki örugglega. Þetta gersist svona 4-5 nætur í hverri viku sem ég á erfitt með svefn. En hann sagði mér að fara að slaka á og nú ætla ég að prófa að fara eftir þessu. Svo sá hann að ég væri að fara að flytja og lýsti íbúðinni. Svo sá hann líka lítið barn í kringum mig sem átti að koma fljótlega og það á eftir að vera fjörugara en það sem ég á, ég bara ónó þá er ég nú ekki að hugsa um að koma með annað;) enda þarf maður fyrst karlmann til þess að geta komið með krakka;) En í karlamálum sagði hann að það er einhver námsmaður sem verður góður vinur minn sem verður maðurinn minn, ég bara kveikji ekki alveg á þessu. Annras sagði hann við mig að hann sæi fullt af karlmönnum í kringum mig, ég laða þetta að mér:) En þetta er svona það helsta svo fá sumir meiri upplýsingar ef þeir vilja;)

En ég ætla að fara að fara með prinsessuna mína til dagmömmunar og fara svo í sund með Írisi minni í þessu rosa góða veðri:)

Dísarinn

Stal einu hérna á síðunni hennar margrétar, fannst hann svo skemmtilegur

 

Stelpa býður kærasta sínum um að koma heim til sín á föstudagskveldi og borða með foreldrum sínum. Þar sem þetta er nokkuð stór viðburður, þá tilkynnti stelpan kærastanum sínum að eftir matinn myndi hún vilja fara út með honum og hafa samfarir í fyrsta sinn.

Jæja, strákurinn er himinlifandi, en hann hafði aldrei áður haft samfarir, svo hann gerir sér ferð til lyfjafræðings til að ná sér í nokkra smokka. Hann segir lyfjafræðingnum að þetta sé fyrsta skiptið og lyfjafræðingurinn tekur sér klukkutíma í að fræða strákinn um allt sem hann veit um smokka og samfarir.

Þegar kemur að því að panta, spyr lyfjafræðingurinn strákinn að því hversu marga smokka hann vilji kaupa: 3 í pakka, 10 í pakka eða fjölskyldupakka. Strákurinn vildi gjarnan kaupa fjölskyldupakka, því hann taldi að hann yrði frekar upptekinn, þetta væri fyrsta skiptið hans, o.s.frv.

Um kvöldið mætir strákurinn heima til foreldra stelpurnar og kærastan tekur á móti honum. ,,Vá ég er svo spennt fyrir því að þú hittir foreldra mína, komdu inn!".

Strákurinn gengur inn og er vísað til borðs þar sem foreldrar stelpurnar er sest niður. Strákurinn býðst skyndilega til að fara með borðbæn og hneigir höfuðið. Mínútu seinna er strákurinn enn við bæn með höfuðið hneigt niður.

10 mínútur líða og ennþá örlar ekki á hreyfingu frá stráknum. Eftir 20 mínútur hallar stelpan sér að kærastanum sínum, sem enn virtist í djúpri bæn, og hvíslar að honum: ,,Ekki vissi ég að þí værir svona trúaður!"

Strákurinn snýr sér við og hvíslar til baka: ,,Ekki vissi ég að pabbi þinn væri lyfjafræðingur!!!!!

HAHAHA!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 10:38:16 / disa

Sunnudagsmorgunn;)

Ég er vöknuð hress og kát og nú eru sumir kanski að nýbúnir að skríða upp í rúm eftir skemmtun gærkveldsins:) en hér var ræs klukkan 8:)

 

En jamm í dag er 3 .júní sem þýðir að það styttist í að ég þurfi að flytja ég sé bara ekki alveg hvernig það eigi eftir að virka hjá mér, er svo löt við þetta. En hún Tinna ætlar að koma til mín og hjálpa mér:) stuuuðððð.

En jamm við mæðgurnar komum í DV á síðasta Þriðjudag og kom greinin bara vel út og við mynduðumst svo vel líka;) allavegana Selma.

Annars er lítið að frétta af mér þessa dagana, er voða mikið að tjilla bara á daginn og svo vinna á kvöldin. En á daginn er ég að skoða húsgögn og er búin að kaupa mér magnað sófasett sem ég tými varla að sitja í:( hvernig virkar það?? Svo langar mig ofsa að fara að versla föt á mig og Selmu en það verður verður að bíða þangað til í haust þar sem ég er að fara til baltimor með mömmu og Ástu systir og þar verður sko verslað.

En ný vika að hefjast, jessssss segi ég nú bara:)

 kveð að sinni úr rúminu í geislanum:)

Dísa


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 12:33:03 / disa

Byrjuð að stalfa kössum;)

Styttist í flutninga:)

Jebb ég er búin að pakka í heila 2 kassa á svona 5 dögum, þetta er mjööggg leiðinlegt og ef einvher bíður síg fram að gera þetta fyrir mig þá má sá mæta bara hingað og byrja:) En ífið er eitthvað voðalega þæjó þessa dagana, var eitthvað að vinna í síðustu viku en svo þess á milli þá er ég bara með kortið mitt að eyða seðlum. Margt sem ég þarf að kaupa fyrir íbúðina og gaman að geta lifað bara svona drottnignalífi og eytt og eytt:) En eg verð farin úr Geilsnum eftir svona 10 daga þannig það er eins gott að fara rífa upp um sig brækurnar og henda þessu ofan í kassa:)

en að öðru, ég nátla tapaði málinu í héraðsdómi út af Selmu en kallinn vann þetta og þarf ekki að borga 1 krónu en ég þarf að borga allt mitt eða um 300.000. JEbbbb ríkið borgar hans lögfræðing en ég þarf gjörusvovel að borga bara mitt sjálf, ég er langt í frá að vera sátt með þetta og finnst dómskerfið bara fáranlegt hérna. ÞEtta er fullorðinn maður sem er búinn að viðurkenna þetta og kemur svo með 3 útfærslur á þessu í yfirheyrslum og hann vinnur þetta. Hvenrig er hægt að láta mann sem meiðir 9 mánaða gamalt barn vinna svona mál????? ég vona svo innilega að dómarinn eigi börn og þetta eigi eftir að gerast fyrir þau. Svo get ég alveg sagt ykkur það að ef ég sé þennan kall t.d. út í búð eða eitthvað þá verður sko sett löpp fyrir hann og neglt aðeins á hann með kerrunni. ÉG óska honum alls hins versta í lífunu bara. En þetta birtist víst í DV á þriðjudaginn og ég vissi nú ekkert að því fyrr en á fimmtudaginn og sá þetta ekki en svo er DV búið að hringja í mig og vilja fá að taka viðtal við mig því jú þeim finnst þetta hneyksli eins og flestum sem vita af þessu. En jamm ég settist niður og leyfði konunni að taka viðtal við mig og svo kemur ljósmyndari að taka myndir af Selmu minni á morgunn.

En vonum bara að þetta komi rétt út hjá DV, ég veit að þeir eiga það svolítið til að breyta þessu og gera þetta krafsandi en ég hlýt að fá ða lesa þetta yfir áður en þetta er birt, vonum það besta bara:)

Vonandi áttu þið góða helgi góða fólk og ég er ekki frá því að ég kíki kanski í 1 beer í kveld fyrst að veðrirð er svona gott og jú Tinna mín er að koma heim frá DK og við verðum að halda upp á það;)

SÆl að sinni, Dísarinn DV


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12